samedi, février 23, 2008

VIÐ ERUM FLUTT

ásvallagata 33
önnur hæð til hægri
grenið, hellirinn og byrgið
sigurlaug, breki og drífa

velkomin í heimsókn!

mardi, février 05, 2008

NOSTALGÍA

mardi, janvier 29, 2008

óvænt ánægja

ég var í vinnunni í síðustu viku og það kom á daginn að ég er sérlega fróð um hnattlíkön

þannig að nú vitið þið í hvern á að hringja þegar babb kemur í líkanabátinn

jeudi, décembre 27, 2007

nú árið er liðið

2007 leið. Með íbúðarkaupum og stúdentsprófi, bíómyndum og sambandsslitum, lífi og tilveru. Takk, þið öll sem voruð memm. Þetta var fallegt ár. Sjáumst á næsta. Kannski blogga ég aldrei framar, kannski bara sjaldan. Kíkiðið samt við hér öðru hvoru, ok?

vendredi, septembre 07, 2007

farin...

...með Oddi til Rómar:



og London:



Við ætlum svo bara að sjá til með París, Tókíó og restina.

dimanche, septembre 02, 2007

smá öppdeit

Lagði af stað til Flateyjar á Breiðafirði að morgni 1. ágúst og var svo bara þar þangað til í gær. Yfirgaf eyjuna aðeins einu sinni á tímabilinu, en þá fór ég á eitthvað sker sem er aktúallí minna en Flatey (og óbyggt). Á þessum mánuði fór ég fjórum sinnum í sturtu, eyðilagði allt fatakyns sem ég tók með mér, þvoði ógrynni af þvotti og klósettum, borðaði ommelettu með osti á hverjum degi í tvær vikur, labbaði 21 km á einum degi, fór í nokkur partý, þreif eftir nokkur partý (þ.e.a.s. öll partýin sem ég fór í) upplifði idioterne á eigin skinni og eignaðist marga góða vini og kunningja. Svo bjó ég líka til bíómynd... eða hjálpaði a.m.k. smá til.

E.s. það er aldrei að vita nema ég setji inn myndir seinna.

dimanche, juillet 15, 2007

minn innri lúði



Þessi mynd er skemmtileg og vel gerð. Að mínu mati besta Harry Potter myndin hingað til.

(Ég ákvað að leyfa litla lúðanum í mér að brjótast út extra snemma í ár vegna þess að síðasta bókin er að koma út. Er að vinna í því að lesa bækurnar aftur, búin að horfa á allar myndirnar, hangi á wikipedia þess á milli. Sem sagt, lúði.)

vendredi, juillet 06, 2007

B k a í f á m b v a s á b s k o k o k h a t é a a u h m a!

Brúnkumontið kom aftur í fésið á mér - brúnkan varð að sólarofnæmi á bringunni sem klæjaði og klæjaði og klæjaði... héðan af tala ég aldrei aftur um húðlit minn. Aldrei!

Við Oddur höldum áfram með burt-úr-bænum-þemað og ætlum til Mývatnssveitar um helgina. Góða skemmtun á meðan.

lundi, juillet 02, 2007

veður og annað boríng

Ég hef ekki bloggað mjög lengi vegna þess að ég er alltaf að bíða eftir að ég nenni að setja inn myndir úr ferðalögum þeim, hverjum ég hef verið í. Ég hef sumsé ekki nennt því hingað til. Svo nú blogga ég bara myndalaust og venjulega.

Vinnuskólinn skánar stöðugt, þ.e.a.s. vinnan sjálf. Hinsvegar verður það ljósara með hverjum deginum (jafnvel klukkustundinni) sem líður að skipulag innan vinnuskólans er ekki nógu gott. Ég myndi gera þetta allt öðruvísi. Ég myndi líka borga mér meiri laun, ehemm. Förum ekki nánar út í það. Ef ég hugsa út í það er ég nánast viss um að ég væri spilltur stjórnandi. Ég myndi draga að mér fé og láta frændfólk mitt ganga fyrir við ráðningar. Gott að ég ætla að verða listamaður.

Veðrið hefur líka haft svo mikið að segja með þetta vinnuskóladjobb. Sko, ef það hefði rignt núna stanslaust í þrjár vikur, þá hefði ég kannski hætt. En veðrið hefur verið ógeðslega gott og þess vegna er ég enn að þessu; ég er orðin brún (á öllum stöðum sem viðeigandi er að bera fyrir framan nemendurna) og ég er með freknur (á nefinu).

Í heimilisfréttum er frá því einu að segja að Oddur keypti sér playstation og ég keypti mér Harry Potter. Nú þurfum við ekki að tala saman þangað til í vetur!

jeudi, juin 21, 2007

hlaup, hlaup, hlaup og meiri hlaup

Ég ákvað um daginn að ég ætla að hlaupa tíu kílómetra í Glittnismaraþoninu í ágúst. Að því fullyrtu verð ég samt að viðurkenna að í núverandi formi kemst ég um það bil sjö kílómetra. Sem þýðir að ég þarf að æfa mig mikið og jafnvel troða mér inn í einhvern skokkhóp. Við sjáum til.

Ég er samt líka að æfa með Svandísi því hún ætlar þrjá kílómetra og þarf að æfa sig svolítið fyrir þá. Auk þess fer ég í ræktina með Steinþóru tvisvar þrisvar í viku. Ef ég verð ekki komin í form í haust verð ég að kallast viðundur.

vendredi, juin 15, 2007

thank god it's friday

Klukkan hálffjögur í dag lauk ég fyrstu vinnuvikunni minni sem leiðbeinandi í Vinnuskóla Reykjavíkur og ég held ég geti með sanni sagt að ég hafi aldrei verið jafn glöð að komast í helgarfrí. Ekki það að krakkarnir séu slæmir. (Þau eru ágæt. Bara svolítið ung og full af hormónum og röngum hugmyndum um hvað sé viðeigandi vinnuhegðun.) Það er ábyrgðin sem er svo þreytandi. Og súrefnið. Og allir símarnir!

Nú ætla ég í ferðalag. Ég VERÐ að komast burt frá öllum arfa þessarar borgar.

jeudi, juin 14, 2007

ökutæki dagsins



Í dag keyptum við Oddur okkur svona. Ég hef gefið honum nafnið Hvíta hættan. Án gríns.

mercredi, juin 13, 2007

endurkoma

Refabloggstímabilið er gengið um garð og þetta gamla góða fær nú að njóta sín á ný. Ástæðurnar eru margar og en eiga það allar sameiginlegt að vera of leiðinlegar til að ég fari að skýra frá þeim hér. Við skulum bara segja að ég hafi skipt um skoðun.

mercredi, janvier 03, 2007

fyrir áhugasama

www.refur.bloggar.is

mercredi, octobre 25, 2006

my bipbopping days are over

Ég var að koma heim af ótrúlega langri og skemmtilegri Herranæturæfingu. Heima eru Bragi og Oddur, sem spila á gítar og syngja, og Auður, sem horfir á L Word og hneykslast á hvað samböndin þar ganga stirðlega. Ég borða plómur með sýrðum rjóma. Oddur er búinn að búa til skúffukökudeig sem er núna í ofninum að verða að skúffuköku. Það er góð lykt í loftinu. Á morgun kemur Þórhalla loksins og ég hlakka mikið til. Það var svo gaman í Kaupmannahöfn, við gerðum bara það sem okkur langaði, borðuðum smurbrauð og danskt bakkelsi, fórum á Louisiana safnið, tókum kaupæði, fórum á kaffihús, höfðum gaman. Ég vildi að ég gæti farið aftur næstu helgi. Annars er Ísland ágætt þessa stundina, með súkkulaðikökuilmi í lofti og fallegum söng og væntanlegri bestu vinkonu.